Ég lenti einu sinni í því að ég var að keyra próflaus :| (ég veit … ég veit.. geri það ekkert lengur ^^)
Og var með 2 farþega í bílnum hjá mér.)
Vorum ný komin úr bílalúguni hjá mcdonalds búin að borða, ég fleygði poka aftur í til gaursins, og sagði honum að setja allt í þann poka.
Og hann gerði það, og HENTI síðan pokanum með öllu russlinu ÚTUM GLUGGAN! og það semsagt fór allt útum allt..
Ég varð alveg brjáluð! og drullaði yfir hann, og sagði að eg ætlaði að snúa við og hann færi út og týndi þetta upp.
Svo allt í einu var einhver brúnleitur jepplingur? fyrir aftan mig flautandi og keyrði hratt að mér eins og hann ætlaði að keyra á mig, hægði svo á sér rétt fyrir aftan bílinn, og fór svo í hliðina á mér og kallinn var eitthvað öskrandi og keyrði svona inná afreinina mína. Eins og hann væri að fara keyra inn á hliðina á bílnum.
Ég fékk bara sjokk og varð bara dauðhrædd xD
einhver fullorðinn maður að elta mig svona..:|
Og ég keyrði bara hraðar og ákvað að drífa okkur heim til vinar míns. Og gaurinn elti okkur allan tímann fór fyrir framan okkur og byrjaði að hægja á bílnum eins og hann væri að reyna stoppa okkur. Ég beygði framhjá. (þorði samt ekki að keyra alltof hratt, er ekki vanur bílstjóri.. EKKI EINU SINNI MEÐ PRÓFIÐ :|.
Svo vorum við einum botnlanga frá húsinu, og þetta var frekar mjór vegur.. Og gaurinn gaf í keyrði fyrir framan bílinn, snarbremsaði og var skávega á veginum, (semsagt eg var eiginlega föst) hann rauk út úr bílnum og gékk snögglega að bílnum okkar..
Ég flýtti mér að læsa bílnum!
Og hann byrjaði að rífa á fullu í hurðahúnin og berja í bílinn og öskraði eitthvað, og sagði mér að opna gluggan.
Ég tók upp síman og ætlaði að hringja í lögregluna, var orðin það hrædd að mer var skítsama hvaða skít eg lenti í fyrir að keyra próflaus. (strákarnir í bílnum voru á fullu að segja mér að hringja ekki í lögguna, ég myndi ekki fá prófið og mímímí) en vá mér var svo sama þá, hélt að maðurinn ætlaði að drepa okkur eða eitthvað hræðilegt.
Ég svona rétt skrúfaði rúðuna niður..
Þá var þessi gaur svona ógeðslega brjálaður yfir því að við hentum ruslinu út (fíflið aftur í gerði það, en allt sem gengur og gerist er bílstjóranum og eiganda bílsins að kenna)
Og mér létti náttla að það snérist um það en var samt smeyk..
Og svo fór hann að bulla eitthvað að hann væri lögreglu maður, en ekki á vakt, og hann hafi hringt í lögregluna og tilkynnt þetta!
Og svo sagði hann “ já og fokking drullið ykkur og tínið þetta upp eða mér er að mæta! ég fer þangað eftir 10 minótur og ef eþtta er enþá þá er ég búin að skrá niður bílnúmerið! ” og svo rauk hann í burtu.
Ég hugsaði bara “ oh my god helvítis anskotans fíflið, allt þetta vesen og hann fældi mig bara í burtu frá staðnum! ég var nú að fara láta taka þetta upp”
Meina ég personulega þoli ekki svona rosa kalla sem að hafa gaman að því að hræða unglinga, vá sá hefur verið alveg rosalega stór með sig. Öskraði á stelpu sem var á 17 ári og hótaði henni, hann yrti ekki einu sinni á strákana sem voru í bílnum.
En já ofan í það xD þá fékk þessi gaur sem henti ruslinu út ALDREI að fara með mér í bíl aftur xD