Auðvitað á hann að missa prófið fyrir 9 hraðakstra en hvað tengist það málinu ? ekki neitt og því á maður að vera hlutlaus ganvart því sem tengist ekki öðru. Mér finnst ekki eins og hann hefði átt að fara í fangelsi fyrir þetta slys, né missa prófið fyrir það. Ég er ekkert að skipta mér af þess akturslagi, og mér finnst rangt af fólki að vera að koma með það inn í umræðuna, það tengist ekki því hvort um hafi verið að ræða slys eða glannaskap.
Segjum að ég hafi verið tekin 9 sinnum fyrir ofhraðan akstur, það segjir ekkert til um það hvort ég keyri aalltaf of hratt eða sé bara óheppin í sambandi við lögguna. Hver veit nema þessir hraðakstrar hafi verið bara rett svo 10 km yfir hámark, við vitum ekkert um það og flesstir sem ég þekki keyra þannig.