Á það ekki skilið vorkunn vegna þess að það er heimskt?
Ég myndi ekki vorkenna þessum krökkum ef þau hefðu verið böstuð við þetta og skömmuð af foreldrum sínum eða eitthvað álíka vægt, en þetta er bara hræðilegt.. Okey, ég veit alveg uppá mig og vini mína að við HEFÐUM MÖGULEGA einhvern tímann getað hafa prufað að gera eitthvað svona hefðum við verið plataðir út í þetta þótt ég telji það ólíklegt, auðvitað er það heimska en að vorkenna þeim ekki eftir það sem að þau upplifuðu er fáránlegt.. Eftir sprenginguna sáu krakkarnir í BEININ á fótunum á vinum sínum, sáu vöðvana leka út og andlitið allt sviðnað, skinnið og kjötið farið af fingrunum. Pældu aðeins í því, þú ert þarna og þú veist ekki hvernig þú lítur út eftir þetta, en sérð allt fólkið í kringum þig alveg ÓNÝTT í framan, þú ferð í panikkast og hleypur einhvert út án þess að vita hvað þú ert að gera, svo ertu liggjandi í snjónum mokandi snjó yfir þig til að kæla niður einhver rosaleg brunasár.
Ef þú vorkennir þessum krökkum ekki… veit ekki hvað skal segja, það er ógeðslegt. (krakkar eiga það til að vera heimskir, yngstu krakkarnir voru 95 model, og eg veit td að einn af þessum krökkum hefur átt mjög erfiða æsku og það má alveg búast við að hann leiðist út í eitthvað svona, og svo hafa örugglega fleiri krakkar þarna átt erfiða æsku líka)