Jújú gæti alveg verið viku fyrir HANA/HANN að virka.
Mismunandi hvernig lyf leggjast í fólk, mismunandi milli lyfja. (en svona ofsalega stuttur tími.. bara vika, hef ég enga trú á)
OG svo má nú ekki gleyma því að það er margt fólk á lyfjum sem þarf þess ekkert, gætir kannski eins gefið henni/honum
Sykurtöflur og sagt að þetta séu þunglyndislyf ;p
Hahaha, ^^
Ef þú ert eitthvað að miskilja mig, þá var ég EKKI að rífast í þér, eða neitt leiðindi.
En samt sem áður þá hef ég ekki græna hugmynd um svona því ég hef aldrei verið á lyfjum.
Þó að læknar og fólk í kringum mig vilji fá mig á einhver lyf, þá vil ég það alls ekki.
Ég bara hreinlega neita !
Samt sem áður þykir mér ekkert að því að fólk er á lyfjum, en ég er samt sem áður sjálf að ekki vilja fara á lyf því ég er hrædd um að lífið og líðan mín og margt fleirra byggist á lyfjum.. Svo er ég hrædd um að skemma í mér lyfrina(eg veit sennilega ofsóknarbrjálæði í mér) hahaha
Og plús þá get ég ekki kyngt neinum lyfjum, ef ég fæ mér verkjatöflu þá kúgast ég svo agalega að ég er liggur við korter að koma henni niður.