Lenti í the wierdest thing í dag! Var að loka og hringdi í símaverið og talaði við Vidda.
Hef talað við hann áður og hann segist þekkja mig eitthvað, allavegana þekkir hann mig í síma… mjög undarlegt og ég veit ekkert hver hann er.
Allavegana… Var að byðja hann um eitthvað og þá fer hann að tala um eitthvað blað, hvort það héngi uppi einhverstaðar og ég hélt nú ekki svo að hann lét prentarann inni á skrifstofu prenta út blað og hengja það upp. Mæli með því að þú skoðir það þegar þú ert næst á vakt, það hangir fyrir neðan vaktaplönin á ganginum.
Ég skoða blaðið og hlæ, finnst þetta frekar fyndinn djókur. Hringi í hann og segi honum að ég hafi fengið þetta og þetta væri komið upp á vegg og allt voða cool.
Stuttu seinna fæ ég senda staðgreiðslunótu í gegnum límmiða prentarann frammi og á henni stendur: **VÁ, HVAÐ ER Í PRENTARANUM??**
Ég hoppa inn á skrifstofu og þá er hann búinn að prenta út mynd sem hann hafði teiknað af sjóræningja og skrifaði á blaðið: ARRRR ÉG ER SJÓRÆNINGI!!
Ég dó úr hlátri og kláraði vaktina með bros á vör. :D
Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda, úti sem og Gabríel…