Vitiði um einhverja skemmtilega partýleiki.. Ekki endilega drykkjuleiki heldur meira svona samkvæmisleiki þar sem allir í partýinu geta tekið þátt (líka þeir sem eru ekki að drekka)

Ég fór í einn skemmtilegan leik í vinnupartýi í fyrra en þá voru margir af gestunum látnir fá hlutverk og hlutverkin voru ekki uppljóstruð fyrr en í lokin á partýinu. T.d. átti einn að tala um á meðan fólkið borðaði hvað maturinn væri ógeðslega vondur, annar átti að halda ræðu á 5 mínútna fresti, einn átti að daðra við allar stelpurnar o.fl. Og það fyndna var að það vissi enginn af þessum hlutverkum nema sá sem lék þau og skipluleggjendur partýsins. Þetta kom mjög skemmtilega út

Mig vantar fleiri svona leiki, e-ð sem er hægt að gera í partýum hvort sem að fólkið í partýinu veit um leikinn eða ekki.. Það eru til fullt af svona, ég bara man ómögulega hvar ég las um þetta…

Einhver sem hefur tekið þátt í partýleikjum eða verið í brúðkaupi þar sem leikir eru “leiknir”?