Þú hefur ekki lent í því versta þótt þú hafir einhverntíman átt erfitt, það er líka þitt að taka þig á og snúa blaðinu við. Það er ekki þín sök allt þetta sem kom fyrir þig. Reyndu bara að koma þér uppúr því, gott þá að þú fannst þessa stelpu. =) En já,
Faðir Minn Var Alkohólisti Og Barði Okkur Systkynin Og Móður Mína
það er mikið af foreldrum sem drekka og ég efast um að þín fjölskylda sé sú versta sko, þau eru mjög indæl.
Rotaði Fyrsta Gaurinn Minn 9 Ára. Ég Var Í Stöðugu Einelti ÞAr Til Ég Flutti Til Hríseyjar.
Það lenda margir og flest allir strákar í slagsmálum þegar þeir eru litlir? búhú? … og alltof mikið af krökkum lenda í einelti, það er samt ekkert það versta, þótt það geti haft mjög alvarlegar andlegar afleiðingar þó ég tali nú fyrir sjálfa mig og aðra nána mér. =/
Ég Missti Ömmu Mína 5 Ára Og Ofur-Frænku Mína 10 Ára.
Þú varst 5 ára, … og já ég veit þú varst búinn að segja mér þetta með frænku þín og ég samhryggist mjög en það eru 6 ár síðan. Reyndu að komast yfir þetta =/
Byrjaði Að Reykja 12 Ára. Byrjaði Að Drekka 13 Ára. Missti Sveindóminn 13 Ára.
Alltsaman þér að kenna og engum öðrum.
Ég Lenti Í Barnaverndarnefnd 14 Ára. Fór Burt Í 2 Mánuði 14-15 Ára.
Örugglega svo þú fengir frí frá öllu veseni sem þú varst í. Þau voru bara að reyna að hjálpa þér.
Öðlaðist Orðspor 15 Ára. Fékk Vernd 16 Ára.
Orðspor að þú værir aumingi og lygari. Og þú fékkst vernd því þú getur ekki varið þig sjálfur.Ekkert hér að ofan var eitthvað sem ég meinti sem skítkast, nema kannski þetta undirstrikaða=)