Hugi.is byggist á því að vefnum er skipt niður í ákv. áhugamál, þar af eru nokkrir yfirflokkar. Ef þú sendir tæknilega spurningu (eins og um windows) inn á Huga, er ekki sjálfgefið að senda hana á hugi.is/windows?
Það er enginn að leggja mat á það hvort hann hafi verið að skrifa eitthvað sem tengist tilverunni eður ei, einungis að benda honum á að hluti af Huga er sérstaklega ætlaður fyrir windows spurningar og það er enginn fasismi að ætlast til þess að windows umræður séu sendar á “windows”. Annars væri hægt að senda bara allar greinar á forsíðu og með því drepa allan strúktur á vefnum. Það að lesa einhvern yfirgang út úr því útheimtir töluvert ímyndunarafl.
Það er enginn að “meina honum aðgangi að kerfinu”, enda er þráðurinn ennþá hér, einungis verið að kenna honum á það.
/netid held ég að sé betri staður fyrir þessa spurningu samt.