ef þú ert með fötu geturu skolað betur en með sturtu og í leingri tíma
Ég botna bara ekkert í þér, skil ekki hvernig það ætti að vera betra.
Og hvað með það þó þetta hafi gerst fyrir þig. Það vita allir að það er drullusárt að fá þetta í augun. Það vita líka allir að það er undirmannað í lögreglunni og þeir þurfa að grípa til róttækrar varnaraðgerða ef öryggi þeirra er ógnað.
Þú gerðir augljóslega eitthvað til að eiga þetta skilið, þó ég sjái auðveldlega fram á það að þú reynir að neita því. Þú hefur augljóslega verið á einum stað frekar en öðrum og tekið þátt í einhverri atburðarrás í staðinn fyrir að fara bara heim.
Ég sjálfur sé ÞAÐ athugavert við lögregluna á Íslandi, það gildir sama náttúrulögmál um hana eins og allt… allt annað. Það er það, að þegar margir hlutir stofna eina heild(hvað sem það er) þá eru einhverjir hlutir sem eru bundnir við það að vera lélegir og aðrir sem eru góðir. Skiptir ekki máli um hvað þú ert að tala, hvort þú ert að tala um lögregluþjóna eða bara fólk yfir höfuð. Gætir þess vegna verið að tala um tómata, ferð út í búð og sérð þar slæma tómata og góða. Þetta gildir um allt og alla í kringum okkur. Sástu fréttina um manninn í Austurríki sem hafði haldið konu í gíslingu í einhver 20, 30 eða 40 ár man ekki hvað það var. Þetta er útum allt.
Málið með lögregluna er það að fólki þykir bara einstaklega gaman að gagnrýna lögregluna, gagnrýna valdið… það þykir víst voðalega “töff” í dag ef svo mætti að orðum komast. Skoðaðu bensínverðs mótmælin á youtube og sjáðu hvernig fólk er að tala við lögregluna, það er engin virðing borin fyrir þessu fólki. Mér finnst það skítt.