Sat inni í eldhúsi eitthvað að tölvunördast og éta þegar ég heyrði einhverjar smá drunur.
Hélt fyrst að þetta væri bara flugvél að fljúga yfir og ég alveg sallarólegur, þegar borðið byrjaði allt í einu að neglast í ofninn.
Svo byrjaði diskurinn að renna eftir borðinu og músin skoppaði út um allt.
Ég auðvitað stökk upp, hafði aldrei fundið fyrir svona rosalegum jarðskjálfta áður.
Ég hljóp að dyrunum og kallaði á bróður minn en fattaði svo að hann var einhversstaðar úti.
Síðan þegar drunurnar byrjuðu að magnast og sveiflandi til, þá kom hundurinn trýtlandi fram úr búrinu sínu, labbaði fram í andyri að gá hvort einhver væri að koma,
leit á mig eins og ég væri þroskaheftur stanndi í dyragættinni allur hríðnötrandi og lagðist svo gólfið og ætlaði bara að fara að sofa ( hundurinn kann að taka þessu með ró =D )
Síðan þegar jarðskjálftinn var yfirstaðinn, allar myndir skakkar á veggjunum, diskurin kominn hinum megin á borðið og tölvumúsin komin niður á gólf,
byrjaði klukkan, *Kúkú kúkú* . Þá hafði hún farið af stað í skjálftanum.