Vei, fékkst nígeríupóst.
Meðal áhugaverðari nígeríupósta sem mér hafa borist í þessum mánuði voru:
Dauðvona læknir frá Indlandi, sem á ekki neina fjölskyldu og vill gefa einhverjum auð sinn áður en hann deyr.
Stór og vel efnaður söfnuður í Bandaríkjunum sem vill hefja útrás til Evrópu og vantar millilið, fjárhagslega.
Evrópskur fasteignafjárfestir sem einnig vantaði fjárhagslegan millilið.
Svo er ég líka mjög reglulegur vinningshafi í hinum ýmsu Evrópskum (aðallega Hollenskum) nethappadráttum og ég held að heildarsumma vinninga minna sé að nálgast 50 milljónir evra.
„It is not worth an intelligent man's time to be in the majority. By definition, there are already enough people to do that.“