Korkurinn heitir Úrslit Morfís 2008
Allavega, ég finn reyndar ekki þráðinn þar sem að þú ert að monta þig yfir því að MR hafi unnið þessa blessuðu “Þrennu” ykkar.
Að vera stoltur er ekki það sama og að vera montinn.
Þar best sést hvað þú ert fullur af skít, Egóisma og stolti yfir eitthverju sem að er varla hægt að vera stoltur af og kemur alltaf með eitthver smartass comment þegar að þú veist að fólk hefur rétt fyrir sér og þú ert búinn að drulla upp á bak.
Fullur af skít? Nei. Egóisma? Nei. Varla hægt að vera stoltur af? Jú. Drulla upp á bak? Þú?
Ég er samt ekki að drulla yfir MR-inga (þó að mér líkar illa við bróðurpartinn af þeim), MR eða þessa blessuðu þrennu.
Þér er illa við “bróðurpartinn” af þeim? Ertu þá að miða við skrif nokkra MR-inga á huga? Þú verður að gera þér grein fyrir því að MR er 1000 manna skóli. Jafn heimskulegt að segja að allir í Verzló séu hnakkamellur sem fara í tan í hverri viku.
Tilvitnun:
Þetta kemur mér frekar á óvart. Að þessi hyski ætli sér að labba.
En hvað græða þeir á þessu? Hverju ná þeir fram? Halda þeir virkilega að þeir nái að lækka niður bensínverðið á einhvern ótrúlegann hátt?
Það er ekki restinni af þjóðinni að kenna að þessir bjánar ákváðu að mennta sig ekki og enda sem einhverjir láglaunaðir aumingjar sem keyra vörubíla allan daginn. Ég segi að þjóðin taki það að sér og standi í vegi fyrir þeim. Hindrum gang þeirra, stöndum fyrir þeim þar sem þeir ætla að labba.
Svo er líka eins gott að þeir geri þetta ekki sama dag og ég fer í próf..
Þetta kemur MR ekkert við, enda ekki eini staðurinn þar sem hægt er að mennta sig.. Það eru skólar út um allt land, ég held að það sért þú sem ert að reyna að fá það út að ég miði allt við MR. Kemur. Svo finnst mér allt í lagi að kalla þessa blessuðu mótmælendur hyski. Einhverjir fábjánar sem mótmæla á ómálefnalegann hátt og trufla hálfa þjóðina með barnaskap sínum og frekju.
En varðandi Morfís korkinn. Þá er ég ekkert bara að upphefja MR. Ég tók það meira að segja fram að Morfís lið MH-inga var frábært og MA-ingar stóðu sig frábærlega í Gettu betur og kepptu drengilega. En það eina sem þig “MR-hatarar” sjáið er bara stoltið, sem þig túlkið sem hroka og monnt.
Ég mundi ekki efa það að ef Flensborg, MH, Verzló, MA, FsU, FS, FíV o.s.fv. myndu vinna allar keppnirnar sem þeir taka þátt í fyrir utan söngkeppnina þá væri þeir svolítið stoltir ekki satt? En það er bara eitthvað með það að MR mega ekki vera stoltir nema að eitthvað fólk fari að drulla yfir þá.
Það er enginn að fara að halda því fram að það þurfi bara einn skóla í Gettu betur. Það er enginn sem heldur því fram að MR sé BESTI skólinn á landinu. Ekki ég og ekki neinn MR-ingur.
En einnig vil ég benda á það að MR tengist þessum korki ekki neitt frekar en skólinn þinn. Ekki er ég drulla yfir þinn skóla og segja að lífsviðhorf þín og skoðanir þínar mótist útaf skólanum. Ekki þú gera það sjálfur.