Af hverju í andskotanum eru þessir bílstjórar að þessu? Af hverju í fjandanum að ganga enn lengra og halda áfram að brjóta umferðalög, haldandi að þeir fái svo sínu framfylgt.

Já, það eina sem ég sé eru nokkrir eldri menn að mótmæla og svo slatti af unglingum í leit að útrás og athygli.

Stjórnvöld voru búin að segja að ef þið mynduð halda áfram að brjóta lög mun svo aldreilis ekkert verða úr þessu.
Lögreglan var búin að segja að ef þið mynduð ekki koma ykkur af veginum myndi hún beita hörku.

Auðvitað gerið þið ekkert í því þið eruð svo harðir og miklir fuck the system kvlt gaurar.

Svo vælið þið og vælið og fattið ekki að þetta er ykkur sjálfum að kenna.

já nei veistu það að ég tek ekki þátt í þessari reiðslu.