jáh búin að gera fullt…
Þegar ég kom heim þá sagði ég við mömmu að bróðir minn hafi lent í slagsmálum og hafi farið til skólastjórans og mamma varð brjál og fór að kalla á hann og eitthvað og ætlaði að tala við hann,
en það mistókst..
Hann hélt að það væri aprílgabb að hann ætti að tala við mömmu (lame ég veit) og hætti við að koma.
Þá hugsaði mamma út í það að þetta gæti verið aprílgabb svooo ég þurfti að segja henni það.
Er líka búin að hringja í ömmu og frænku mína og þykjast vera frá gallup ( leyninr. kassi31kassi svo nr)
Og svo hringdi ég í pabba og sagðist hafa komið við í vinnuna hjá honum og hann hafi ekki verið við og ég skildi eftir poka fyrir utan..
hahah, og hann var akkúrat ekki í vinnunni þegar ég hringdi ( var samt að vinna en ekki á vinnustaðnum)
svo að hann þarf að fara að gá að þessum poka og svo þegar hann er ekki þar þá hringir hann í mig..
Mér dettur samt ekkert almennilegt aprílgabb í hug ;s.