Var líka andvaka í nótt og núna er þreytan að hellast yfir mig. Sem betur fer á ég samt bara einn tíma eftir. Má reyndar ekkert sofna þegar ég kem heim, verð víst að geta sofið eitthvað í nótt. :P
Been there. Svo er aldrei til eitthvað að éta heima svo ég get ekki einu sinni farið með nesti.
Best er þó þegar ég er búin að drullast út í búð í skítakulda, komin á kassann og farin að slefa yfir ógirnilegri samloku (whatever það er sem ég er að kaupa) og uppgötva að ég er ekki með kortið mitt. Gotta luuuuv that.
Miðað við þitt taumlausa holdafar er það nú skiljanlegt. Þú yrðir náttúrulega bara áreitt. Fólk myndi jafnvel hringja á lækni til að fá hann til að ráðleggja þér að einfaldlega stoppa, eða slökkvulið til að fjarlægja þig til að fólk þyrfti ekki að horfa upp á slíkan óhugnað.
Nei ég er að grínast. Af hverju borðaru ekki á almannafæri? Hljómar eins og óþæginlegur kvilli.
Finn til með þér :/ Hundleiðinlegt að vera svangur og þreyttur í skólanum, það er allavega skárra þegar maður er að gera eitthvað annað en að sitja og horfa á kennarann.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..