Segðu satt, heldur þú þetta í alvörunni? Vegna þess að einhverjar kannanir sem enginn annar hérna (sýnist mér) veit um segja þetta? Þær gætu þess vegna verið kolrangar ef þær eru þá til.
Þú heldur sem sagt að ef karlmaður, sem ber mikla virðingu fyrir kvenmönnum horfi á of mikið klám, hætti hann smám saman að bera virðingu fyrir þeim, eða hvað? Verður hann þá kannski bara farinn að nauðga eftir mánuð?
Ef það er þannig þá ertu með sömu rök og fólk sem segir að tölvuleikir séu hættulegir vegna þess að fólk verði ofbeldishneigt útaf því að spila of mikið af leikjum sem innihalda ofbeldi.
Jú, vissulega getur það gerst en það hefur MIKLU MEIRA með einstaklinginn sjálfan að gera heldur en tölvuleikinn. Sama gildir um klám, það er ekki þannig að allir karlmenn sem horfa á klám hætti að bera virðingu fyrir konum, langt því frá, má vel vera að EINHVERJIR geri það, en alls ekki allir. Þarna er ég að ganga út frá því að þú hafir rétt fyrir þér með að klám geti verið niðrandi fyrir konur, sjálfur skil ég það ekki alveg, enda ágætlega heill á geði.
Hættu að reyna verja þetta rugl þitt með “könnunum” sem enginn hérna hefur séð og komdu með einhver rök, sýndu okkur þessar kannanir.
Ég tók einnig eftir því að þú svaraðir
Það á að banna öfgafemínisma og útrýma ójafnrétti kynjanna, allir sáttir. ^^
með þessu
Og lögleiða þannig kúgun kvenna og kynferðisofbeldi. Þetta er ljótt að heyra.
og ég er forvitinn, hvernig tengjast jafnrétti kynjanna og engir öfgafeministar lögleiðingu kúgunnar og kynferðisofbeldis? Er ekki hluti af jafnrétti það að útrýma kúgun kvenna? Og telur þú að öfgafeministar séu það eina sem getur stoppað kynferðisofbeldi, sem ég veit þó ekki til þess að hafi minnkað eftir að öfgafeministarnir komu á sjónarsviðið?
Þú talar líka um kúgun kvenþjóðarinnar á ýmsum stöðum, en ég sjálfur veit ekki til þess að hún fyrirfinnist í eins miklum mæli og þú segir. Í hverju er þessi kúgun fólgin? Bara kláminu, kannski? Er klám uppspretta þess sem þú lítur á sem ójafnrétti?
Svo er það það að karlmenn séu að sverta ímynd feminista, einfalt svar við því er að það séu manneskjur eins og ÞÚ sem gerið það, þú og aðrar manneskjur eins og þú eruð ástæða þess að mér líkar illa við feminista.
Þú segir bara það sama aftur og aftur,
Það þarf að útrýma klámi til að ná fram jafnrétti því klám dregur úr sjálfsmynd kvenna og virðingu karla gagnvart þeim. Þar að auki er klám ólöglegt og því ber að taka á þessu.
heldur því fram að þeir sem tali við þig séu brenglaðir vegna þess að þeir horfa á klám og kemur með einhver fáránleg dæmi um að ef sá sem þú ert að tala við hefði sagt þetta á einhverjum örðum tíma hefði eitthvað annað gerst. Málið er að það er EKKI það sem er að gerast.
Það sem er að gerast er að þú ert að skjóta sjálfa þig í fótinn, þú heldur að við verðum athlægi vegna þess að við erum á móti “jafnrétti” öfgafeminista en málið er að fólki líkar ekki vel við öfgafeminista og þá er ég ekki bara að tala fyrir sjálfan mig.
Hingað til hef ég haft óbeit á öfgafeministum, aðallega vegna þess að ég hef aldrei séð nein almennileg rök fyrir því að berjast fyrir þessu kjaftæði sem þeir kalla “jafnrétti”. Endilega reyndu að fá mig til að skipta um skoðun.
Síðan vil ég einnig benda á að þú ferð þarna með staðreyndarvillu, hann gerði “sömu mistök” í sömu málsgrein, ekki setningu.