Hvernig virkar þetta? Er ekki hægt að fá leyfi foreldra fyrir ófjárráða börn fyrir korti sem einungis fjárráða geta fengið? Eru ekki einhver kort sem gilda fyrir <18 sem hægt er að hafa afnot af til þess að t.d. panta á netinu?
Getur fengið kreditkort hjá kreditkort ehf. Sniðugast að fá sér bara mastercard +, sem er einsog debetkort nema með sömu fríðindi og kreditkort :) Getur sótt um á heimasíðunni, kreditkort.is. Þarft ekki samþykki foreldra fyrir það.
Jámm, gekk bara vel.. sótti kortið bara til þeirra í ármúlann minnir mig, einhverjum dögum seinna :) Oftast mjög góð þjónusta þarna hjá þeim og almennilegt starfsfólk
Neinei þarft ekkert að breyta þessu, alveg eins fínt að fá það bara sent heim, sparar þér ferðina :) Ég borga inná kortið í gegnum heimabankann minn, leiðbeiningarnar um hvernig á að gera það koma með kreditkortinu :) Ef þú ert ekki með heimabanka geturu bara gert það einsog þú millifærir venulega á milli korta.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..