nasismi er einfaldlega þannig að hver einstaklingur vinnur í því að gera þjóðina sína að betra þjóðfélagi ef ég man rétt, t.d. var það það sem hitler barðist fyrir.
Rangt.
Nasismi er hugmyndafræði sem byggir algerlega á hugmyndum Hitlers sem hann var svo góður að skrifa niður fyrir okkur í Mein Kampf. Í grunninn skiptist sú hugmyndafræði í þrjá hluta:
- Að líta á söguna sem baráttu milli kynþátta (þarna var hann undir miklum áhrifum af “Social Darwinisma”)
- Gyðingahatur
- Hugmynd um að Þjóðverjar þyrftu að hernema “Lebensraum” eða “rúm til að lifa” frá Sovétríkjunum.
Nationalismi eða
þjóðernishyggja var stór partur af hugsjón Hitlers. Hann vildi að Þýskaland yrði byggt upp af þýsku þjóðinni.
Rasismi er óhjákvæmilegur partur af Nasisma (sem er ekki svo óskildur Fasisma). Til að yfirburðir Aríska kynþáttarins gætu komið fram þurfti fyrst að hreinsa þjóðina af öllum gyðingum, blökkumönnum, asíubúum - nú sem og þeim sem báru sjúkdóma sem erfast eða voru taldir erfast á þessum tíma.
Nú, allt þetta átti að miðast að því að búa til
autarkíst ríki sem einungis innihéldi þjóðverja. Í því ríki væri hver einstaklingur frjáls - réði sjálfum sér algerlega en ekki öðrum, ásamt því að ekki væri nein stjórnvöld.
En viti menn, stangast ekki eftirfarandi Nasistasjónarmið aðeins á við þetta fullkomna ríki?
- Lýðræði var afnumið.
- Málfrelsi? Ó nei,
stjórnvöld fílaði það ekki.
- Takmarkað trúfrelsi. Obbosí.
- Nútímalist var meira að segja slæm. Þó svo að ég hafi ekkert á móti klassískri list sem var höfð í hávegum hjá Nasistunum finnst mér það nú aðeins stangast á við þetta yndislega frelsi að hafna nútímalist.
- Verndun dýra, náttúru og lýðheilsu: Meðan þetta eru langt í frá slæmir hlutir, þá stangast þeir nú frekar mikið á við það að ef þeir hefðu náð að skapa fullkomna ríkið sitt þá gæti hver maður ráðið sér sjálfur og pyntað sinn eigin hund og kött ásamt því að skemma náttúruna. Nú, sem og ég mætti alveg reykja ef ég vildi, en Nasistar voru einnig á móti því.
Það er alveg rétt sem þú segir að það að vera kynþáttahatari er ekki það sama og að vera nasisti, en þú getur aftur á móti ekki verið nastisti án þess að vera kynþáttahatari.