Ég þoli ekki fólkið sem bloggar við þessa frétt, það eru allir svo öfundsjúkir. Fólk sem vinnur sér fyrir svona hlutum má kaupa sér þá án þess að þurfa að skammast sín fyrir það, þó það sé til fólk sem á ekki neitt hér á landi, það kemur því ekkert við frekar en það vill. Fólk gleymir því oft að þó að sumir kaupi sér síma upp á 100.000 og bíla upp á 10 milljónir, getur það samt sem áður verið að gefa fullt í góðgerðarsamtök.
Öfundsjúkt fólk sem gagnrýnir auðmenn fyrir að nota peningana í það sem þeir vilja ætti frekar að selja bílinn sinn, kaupa strætókort og gefa mismuninn í góðgerðasjóði. Eða sleppa einni utanlandsferð á ári.