Sumir eru það örvæntingafullir að vond athygli er betri en enginn.
Ég þekkti einu sinni stelpu, hún var með mér í skóla, hún átti eiginlega enga vini, og þar sem ég var líka hálfgerður einfari í mínum grunnskóla, þá sóttist hún mikið í að vera í kringum mig, en ég þoldi hana ekki og var leiðinleg við hana. But the point of this story is. Hún var alltaf að segja svona hluti eins “mamma lemur mig” “frændi minn nauðgaði mér” “Ég lenti í hópnauðgun” “Ég var í fóstureyðingu eftir kærastann minn” og fleiri vitleysa sem kom frá henni, ég spurði einu sinni einhverjar stelpur sem hún var stundum með út í fjölskyldu lífið hennar og þær sögðu mér að hún hefði aldrei átt kærasta og að mamma hennar væri ljúf og góð og miklu minni en hún og það væri ekki möguleiki að hún væri að segja satt. Ég trúði henni aldrei en það er bara svo súrt að vera að ljúga svona til að eignast vini.
Önnur stelpa sem ég þekkti var að ljúga því að mamma hennar væri að lemja hana, það fór það langt að hún var komin á heimili fyrir unglinga mánuði seinna eftir að ég fór með henni að tala við féló. Á þessu heimili gerði hún allt vitlaust hún sakaði strák um að hafa nauðgað sér, fólkið sem rak heimilið vísuðu henni út. Staðreyndin var að samfarirnar áttu sér stað í hans herbergi og það var ekki hægt að læsa innan frá. Og engin merki um áflog. Það sorglega var að við trúðum henni og söfnuðum liði til að berja saklausan dreng. Ég komst að sannleikanum nokkrum árum seinna. Seinast þegar ég frétti af þessari stelpu var hún búin að koma sér í ofbeldissmband, svo núna er hún ekki að segja neinum að það er verið að lemja hana sundur og saman. En það væri allavega sannleikurinn í dag.
Ég er ekki að segja að allar þessar stelpur séu að ljúga, en ég er að segja að þær séu að leyta af athygli á mjög furðulegan hátt.
Flestir sem lenda í svona áföllum eiga erfitt með að tala um það, og það getur líka komið frá þeim vitlaust og á vitlausum tíma. Eins og stelpu sem hefur verið nauðgað, hún ímyndar sér kanski að strákar vilji hana ekki lengur. Og segjir það við fyrsta tækifæri til að athuga hvernig hann bregst við.
En ég myndi efa svona sögu sem kemur án þess að þekkj manneskjuna neytt mikið, kanski vegna þess að mín reynsla segir að þær stelpur sem ég hef þekkt og láta svona eru ekki alveg heiðarlegar.
Þegar fólk gefur mér of mikið af upplýsingum við fyrstu kynni eru mín viðbrögð að flýja.
Diamonds arn´t forever….. Dragons are