Reyndar sá ég bara nafnið á korknum í heitum umræðum, og þótti rétt að benda á hversu fáránlegur þessi pirringur væri eftir að ég las hann. Því miður virðist sem svo að þetta samfélag sé að fyllast af bjánum, fyrst að svo margir geta pirrað sig á þessu. Ég meina, þetta eru skór. Þú getur rennt þér svona þrjá metra í einu. Hvernig í andskotanum er einu sinni hægt að finnast þetta pirrandi? Það er mér gjörsamlega ofar skilningi.
Og nei, ég er ekki einn af þessu “oss”i þínu, þar eð ég er ósammála þér, ásamt fjöldanum öllum af öðrum ástæðum.
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.