Ef forseti bandaríkjanna væri að flytja ávarp myndi ég fara að trufla það, helst láta lýta út fyrir að hann væri endanlega genginn af göflunum, byrja á að hvísla einhverju á fullu í eyru á honum, slá hann svo utan undir og svona ýmislegt sem myndi fá hann til að taka skemmtilega kippi. Gæti líka verið gaman að gera það sama í kappræðum milli forsetaframbjóðendanna.
Ef ekkert slíkt tækifæri myndi gefast væri ég til í að komast á skjalasafn Vatíkansins, Area 51 eða í höfuðstöðvar frímúrarareglunnar.
Svo væri líka örugglega líka gaman bara að fella fólk á fjölförnum götum eða fara inná í einhverjum stórum fótboltaleik.
ps geturðu gert mig ósýnilegan eða var ég að sóa tíma mínum til einskins við að hugsa um þetta?