Sko.
Heimabankar eru nútímaþægindi, við kæmust örugglega af án þeirra en við erum orðin vön þeim.
Það sparar mikla vinnu fyrir bankana að láta fólk nota heimabanka, þá þurfa þeir ekki að láta fólk bíða í röðum eftir því að millifæra og þeir létta álagið af starfsfólkinu. Þetta er ekki bara fyrir viðskiptavinina.
En þetta er svona, tja, hvernig get ég komið með gott dæmi?
Þetta er eins og ef fólk væri skyldað til að hafa þjófavörn á húsinu sínu, svona til að spara löggunni vinnu við að leita uppi innbrotsþjófa. Það myndi mögulega vera gömlu fólki til mikils ama. Og síðan væri þetta kannski þannig að fyrsta þjófavarnakerfið væri ókeypis en ef þau myndu bila þá þyrfti fólk að kaupa sér annað á fullu verði.
Eða bara eins og þú myndir fara á veitingastað og þjónarnir eltu þig inn á baðherbergi til að skeina þér. Vá, fín þjónusta, en ekkert allir sem vilja þiggja hana.
Svolítil extreme dæmi en sumir vilja bara passa upp á sig sjálfir.
Deyr fé, deyja frændur,