Langur biðtími
ARG! Ég er pirruð! Mér tókst að detta og slasa mig á hjóli, reif upp alla vinstri hliðina á mér. Er búin að jafna mig allstaðar nema í helvítis öxlinni. Ég er algjör adrenalín-sjúklingur og má ekki æfa og ekki synda sem eru tveir hlutir sem mér finnst alveg æðislega skemmtilegir. Það eina sem ég má gera er að hlaupa, ekki æfa og keppnistímabilið fer að hefjast bráðum. Ég veit alveg hvað mig vantar, það er straummeðferð hjá sjúkraþjálfa en það er alveg ÓRALANGUR biðtími, mér var sagt að ég gæti flýtt fyrir ef ég fengi beiðni frá lækni, en ég fæ ekki tíma hjá honum fyrr en efir viku þannig að þangað til verð ég bara að springa úr þörf til að lemja fólk :@. Þurfti bara að koma þessu út úr mér, ég get ekki einu sinni borið tösku á bakinu þökk sé öxlinni á mér og skólinn er alveg að fara að byrja.