Vona að þú farir varlega þín vegna.
Ef þú ert réttindalaus og lendir í slysi dekka tryggingar það ekki, hvort sem það eru þínar tryggingar eða vinnuveitandans.
Annars skil ég þig ágætlega, það er lítið mál að keyra lyftara. Það er bara einfaldlega ekki ætlað öllum. Hef unnið með nokkrum einstaklingum á fleiri en einum vinnustað sem eru gjörsamlega vanhæfir í að stjórna slíkum vinnuvélum. Prófið sjálft er óttalegt formsatriði (Enda yfirleitt hlægilega auðvelt), býst við að það sé aðeins til þess að sía út þennan örlitla hluta sem stofnar sjálfum sér og öðrum í voða.
Gangi þér annars vel með þetta og flýttu þér bara hægt!
Peace out.