Ég er x-reykingamaður, morgunsígarettan var bara ógleði fyrir mér. Þessi tilfinning, shit hvað ég þarf sígarettu og maður fórnar næstum allt fyrir hana, svo sem þú ert seinn í skólann en verður 5 mínútum seinari til að reykja hana. Það er þessi sígaretta sem segir þér að þú ert virkilega fíkill. Hataði hana alltaf og bókstaflega hún sem lét mig hætta ^^
Bætt við 22. júlí 2007 - 04:44
Reyndar alhæfði ég líka smá. Það var klassi þegar maður vaknaði skraufþunnur á laugardegi, finnur út að maður er einn heima og á nokkrar pítsusneiðar eftir frá því í gær, setja þær í örbylgjuna og fá sér ískalt Pepsi Max með og SÍÐAN morgunsígarettan, jebb alsæla :D