Mér finnst doldið spes að það eina sem heldur mér frá því að keyra bílinn minn utan í vegg á svona 100km hraða er að ég tími ekki að skemma bílinn.

Mér finnst doldið spes að maður getur haldið sér uppi, látið sér líða vel í langan tíma, en svo verður maður þreyttur á því í svona eina kvöldstund og bara…fer niður.

Mér finnst líka doldið spes hvað ég er emo í kvöld. Ég hata þegar maður verður emo :(

Það er hinsvegar fínt að eiga vini til að tala við. Verra þegar þeir eru sofandi.

Ég ætti bara að fara að sofa. Góð ráðlegging til emofólks seint að kvöldi :)