og já í jesús og ALMÆTTI SINS nafni ekki biðja umm svo miklar ólivur að við ælum næstum því yfir bátin, kommon sko,
Er það ekki ykkar að biðja uppá ólívur?
Og ef einhver vill mikið af þeim þá eigið þið bara að setja mikið…Ef hann biður um meira…Þá setjiði meira…
Og maður er nú alltaf kurteis…En það er ekki bara viðskiptavinirnir sem eru “ókurteisir”
Ég hef nú lennt í allskyns Subway liði sem er að afgreiða…Sumir eru bara að spjalla við vini sína og eru ekkert að gera vinnu sína…Aðrir koma ekki einu sinni að afgreiða mann stundum…Nema eftir svona 10 mín.
Bætt við 17. júní 2007 - 01:48 Ein saga…
Ég var á Subway í Hafnarfirði að versla mér eitt stykki Subway hér forðum…
Það var þessi stelpa að afgreiða mig…Ég segi við hana “Jáá…Ég ætla að fá einn bát mánaðarins…6 tommu í Honey Oat Brauði”
Hún var ekki að fylgjast með greinilega því að hún kom með Ítalskt Kornbrauð 12 tommu og var að byrja að setja á hann þegar ég sagði “Neei…Ég ætlaði að fá 6 tommu í Honey Oat”
Og hún sagði við mig “Jáá…Segja það þá!!!”
Sem var auðvitað alveg útí hött þar sem hún var greinilega ekki að fylgjast með…
“Grænmeti?” Segir hún og ég svara…!“Jáá…Ég ætla að fá MJÖG mikið af lauk og papriku…Kál…Súrar gúrkur og tómata”
Í staðin fyrir mikið af lauk og papriku fæ ég hrúgu af káli og frekar lítið af lauk og papriku…Svo ég þurfti að leirétta hana…
“Sósu?…” sagði hún…“Heyrðu…Gæti ég fengið aðeins meiri lauk?” svaraði ég þá.
Og þá segir hún “Bíddu…Er þetta ekki nóg eða?”
Svo loksins eftir það sagði ég “Ég ætla svo að fá MJÖG mikið af Sætlaukssósu…Og smá Ostasósu”
Og hún setur það á bátinn…Og ég bið um aðeins meiri Ostasósu…Og hún lýtur bara á mig eins og ég sé einhver fáviti…
Svo loksins fer ég að borga…Rétti henni kortið mitt…Hún lýtur á það (á myndina) og hlær bara…Eins og ég sé einhver fáviti (again…)
Ég segi svo “Eða heyrðu…Ég ætla að fá hjá þér Fresca”
Og hún stimplar það allt inn..og rennir svo kortinu í gegn…
Ég tek svo við því og segi “Takk”
En ég fæ ekkert svar…
Ég sest þá niður og ætla að fara að borða bátinn minn…Þá stendur hún bara þarna og horfir á mig…Kallar svo í vinkonu sína og hvíslar einhverju að henni og bendir á mig…
Svo alveg þangað til að ég fór var hún bara horfandi á mig eins og ég væri þroskahefur meðan hún hélt áfram að afgreiða…