Loksins er þetta blessaða vor að koma og skammdegisþunglyndið að fara!
Það er svo undarlegt að finna hvernig vellíðanin kemur yfir mig þegar ég sé að vorið er að koma:
Blóm byrjuð að stinga hausnum uppúr moldinni, flugur byrjaðar að koma og bögga mann með eilífu suði sínu, heyra fuglana garga á morgnanna við gluggann hjá manni og sólin byrjuð að hita landið :D
Ég hlakka svo til þegar sumarið kemur í allri sinni dýrð og ég get farið út án þess að dúða mig í föt.
En spurning…
Hvað hafið þið planað fyrir sumarið ?