Hjálp með stærðfræði. Er með tvö svona skemmtileg orðadæmi og þau er svona:
“Í margföldun og deilingu skipta formerki talna miklu máli varðandi hvaða formerki útkoman fær. Hvaða reglur gilda í þessu sambandi? (Hvenær er útkoman plústala og hvenær er hún mínus tala)”
“Hvað merkir það þegar sagt er að plús og mínus skipti dæmum í liði?”
Svo er eitt töludæmi:
Raðaðu tölunum í dæminu upp þannig að sléttu tölurnar komi á undan oddatölunum:
- 1 - 6 - 5 - 2 + 9 = ???
Það væri ágætt að fá smá hjálp…
Bætt við 15. janúar 2007 - 23:54
Já, ég veit að þetta á að vera geðveikt létt, en ég bara kann e-k-k-e-r-t í stærðfræði.