Veistu, ég bara man það eiginlega ekki :/ Er ekkert mikið búin að pæla í jólunum, ætla bara að leyfa þeim að koma :) Ég veit bara að við verðum ekki með neitt reykt eða salt á aðfangadag en við verðum með hangikjöt á jóladag. Svo verður einhverntímann heimatilbúinn ís með daimkúlum og aero-bubbles (tvískiptur) og einhverntímann verður fromage með mokkabragði :)
En aðal málið er morgunmatur/hádegismatur á jóladag. Ostar, kex og sultur, rúgbrauð og síld og svo allskonar brauð og fínerí :) Mmmmm ….