Þið sem stáluð tölvunni minni í gær mega vinsamlegast skila henni aftur… Ég meina, hún er hvort eð er alveg að verða ónýt. Það hefði verið meira vit í að taka peninginn sem var á ísskápnum, vínið, listaverkin og sjónvarpið heldur en fartölvuna, því að hún er ekki neins virði. Fyrir hitt, á góðum degi hefðuð þið slefað upp í milljónina.
Jæja, rétta svo upp hönd! Hver stal henni!?
Og bleh, hættið svo að brjótast inn til mín… annað skipti á þremur mánuðum… reyndar engu stolið í fyrra skiptið, bara gerð heiðarleg tilraun til að skemma rándýrt píanó og svo sett mjög feitt krem í dýran stól (það sem sjö og átta ára krökkum dettur í hug…).
Jæja, þið sem brutust inn til mín í gær, fyrir hádegi, endilega skilið tölvunni á sama stað og þið tókuð hana.