Þetta fólk er alveg ótrúlegt, ég hef varla annað orð yfir þetta!…
Ég efast ekki um að þetta sé líka annarstaðar.
En okay, ég á heima rétt hjá Bónus á Akureyri og fólk sem er búið að versla og fer út með Innkaupakerrurnar til að skutla vörunum inn í bílinn, það er ekkert mál og allt í gúddí með það.

En svo DIRFIST það að skilja kerrurnar bara þar eftir EINHVERSTAÐAR sem þeim sýnist!? er hægt að leggjast lægra? Það er til staður svo hægt er að skilja kerrurnar eftir á ÖRUGGUM stað.

Eins og í dag var svolítið hvasst og kerrurnar sem skilnar voru eftir voru Hér og þar og rákust í suma bílana.

… alveg ótrúlegt, segi ég bara aftur. Fólk er fífl!