Í fyrsta lagi er faggi niðrandi orð og þú ættir ekki að nota það! Líka kynvillingur! vá hvað mér brá að sjá þetta! Þú veist ekki hvað þetta er dónalegt…
Í öðru lagi, þú sérð það í sjónvarpinu, “Queer eye for the straight guy” og þú sérð það á gay-pride, Páll Óskar og félagar að skemmta sér, þú tekur eftir því á götunum ef homma-par er að kyssast en það þýðir ekki að samkynhneigðir séu að “auglýsa” kynhneigð sína! Þú tekur einfaldlega eftir því vegna þess að það er öðruvísi…
Í þriðja lagi, afhverju ættum við að vera með straight pride? Gay pride (ef ég skil það rétt) hófst til þess að efla samstöðu milli samkynhneigðra vegna þess að fáfróðlingar eins og þú viljið ekkert með þá hafa! Samkynhneigðir eru minnihlutahópur og verða fyrir gífurlegum fordómum! Þar af leiðandi er ofsalega gott fyrir homma og lesbíur að safnast saman einu sinni á ári og fagna saman! Gagnkynhneigt fólk þarf þess ekkert vegna þess að það eru engir fordómar eða neitt slíkt gegn gagnkynhneigðum!!!
vitleysingur…