Ég er ógeðslega reið. Hef samt enga ástæðu til að vera reið. Vaknaði bara eftir síðdegislúrinn minn í gær og langaði til að drepa einhvern. Í dag varð ég aftur svona reið útaf einhverju sem skipti í rauninni voðalega litlu máli. Ég er bara búin að vera svona ógeðslega reið og pirruð og veit ekki alveg hvað ég á að gera í því.
Hvað getur maður gert? Ég vil ekki vera svona vond við fólkið í kringum mig.