Hvað fær þig til að líka vel við fólk og hvað fær þig til að ákveða að þú ætlir nú ekki að kynnast þessum þegar þú hittir fólk í fyrsta sinn?
Tjah, maður tekur eftir því hvernig fólk hagar sér, hvernig það talar, hversu mikið það talar og um hvað það talar.
Ef að fólk er bara áhugalaust útí allt og alltof heimskt fyrir heiminn nenni ég ekki að þekkja það. Ég er með svo mikla fullkomnunaráráttu. Verð pirraður ef að fólkið í kringum mig er heimskt, eða framúrskarandi heimskt.
Það sem lætur mig líka við manneskju er húmorinn, takturinn, sjarminn sem fylgir manneskjunni.