Hvað er málið með ykkur litlu fróðleiksmola sem skellið þessu í undirskriftina ykkar? Endilega fjarlægið þetta, það er alger óþarfi fyrir ykkur að sýna hve mikið þið syndið á móti straumnum (sem sést best á því að þið settuð þetta tískufyrirbæri í undirskriftina ykkar) með því að skella gjörsamlega fáránlegum tölum í undirskriftina.
Í fyrsta lagi eru fleiri sem hlusta á rokk en rapp á Íslandi, mikið fleiri. Í öðru lagi eruð þið öll það ung að þið gátuð ekki “stayed with rock”, rappið var komið fram á sjónarsviðið þegar þið fæddust og þið gátuð valið.
Í þriðja lagi lýsir þetta bara wannabesyndaámótistraumnumleika, sem er eitt það sorglegasta sem hægt er að sýna.
Í fjórða lagi er ekki hægt að koma með nein rök fyrir því að fjarlægja þennan þráð, ekki eyða honum.