Vinkona mín, þessa dagan er hún bara að gera í því að fara í taugarnar á mér!

Vissuði að traust ykkar á fólki hefur “Best fyrir” dag? Traustið verður útrunnið!

Allavega, hjá sumum. Einsog og þessi stelpa, hún er ein af fáum sem ég hef aldveg treyst fyrir sumu.. Hlutir sem ég sagði henni frá fyrir 2 mánuðum eru ekkert leyndarmál lengur, hún er kjaftandi í allt og alla og stundum fyrir framan mig! Um daginn var ég alveg við það að öskra eitthvað sem hún hafði sagt mér þegar hún var að kjafta einhverju um mig fyrir framan mig. Ég er bara ekki svona ómerkileg, ótrúlegt en satt þá er ég vinur vina minna. Eða svona, tel mig vera það.

Síðan er ég alltaf að heyra hér og þar hvað hún talar niður til mín. ég veit ekki hvað ég á að gera við hana, mig langar svo að segja eitthvað við hana, ég bara þori því ekki. Ég er svo mikill kjúklingur. Arg, hún er bara svo fölsk að ég er að spirnga!

Og þetta hefur maður alið við brjóst sér!

Huhh…

:)