var einu sinin að labba með vinum mínum inni í einhverjum skóg nálægt akureyri, þar var allt útí geitungum, ég var svona að reyna bægja þeim frá mér með höndunum og svo stakk mig einn í hnéð, sem var vont svo ég settist niður á einhvern trjábol… Svo fattaði ég eftir á að trjábolurinn sem ég settist á var geitungabúið sjálft, og það komu alveg trilljón geitungar útúr hliðinni á trjábolnum allir sveimandi í kringum mig, sá ekki framfyrir mig fyrir þeim, svo stakk mig einn í hálsinn og annar í olnbogann.
Var eitthvað í kringum 10 ára, drullaði næstum á mig, allt morandi í þeim, kringum hausinn á mér, og ég hljóp bara beint áfram og hitti vini mína ekkert fyrr en þeir komu svo skellihlægjandi, en líka skíthræddir útúr skóginum :P
Er samt ekkert hræddur við þá, en allir sem ég þekki dansa allskonar dansa í kringum þá til að losna við þá :P