Þú heyrir rímu mína einu sinni og þú færð hana á heilann. Heyrir hana einu sinni enn og það eina sem þú kemst að er Rottweila. Á hverju götuhorni færðu að sjá ásjónu mína. Innan skamms ertu farinn að efast um geðhilsu þína. Þú heyrir rödd mína í hausnum á þér og heyrir að ég er orðinn æstur. Fer að ásækja þig í draumum og aðdáun þín breytist í ofsahræðslu. Þú ert orðinn strengjabrúða og veist að ég er yfir þér. Þú getur flúið en þú getur aldrei falið þig fyrir mér. Þú ert á leið til lsturlunar og þannig tek ég þig á taugunum. Getur aldrei gómað mig því þú sérð mig ekki fyrr en þú lokar augunum. Þú fjarlægist raunveruleikann með hverju orði af mínum munni. Ef Freddie Kruger væri til myndi hann dreyma martraðir um mig. Nú ertu orðinn holdgervingur illsku og í gegnum þig við myrðum. Erum ekki í víðu heldur kyrtlum. Er við ekki yrkjum heldur kyrjum. Rímur af mínum syndum. Gefinn út í fimmtán bindum. Veruleikafirrtur. Rís úr kistu, fyrstur. Anti kristur. Nú er sturlunin farin að dreifast sem plága og allir mína rímu syngja. og ég leiði hér uppvakninga og geðsjúklinga. Með satanískum rímum drepið ófáa en enn ég tunguna tálga. Nostradamus spáði um komu mína Helter Skelter Bent nálgast.
Viðlag: Skapaði heiminn á sjö dögum og eyði honum á jafn mörgum. Náttúruhamfarir á fyrsta degi og engisprettur á öðrum. Þriðja, fjórða, fimmta og sjötta mun ég bæta við ykkur kvölunum. Kem svo sjálfur á sjöunda degi til að ráða ykkur af dögunum.
Ég er Hann, ég er Jahve, Jah, ég er fokkin' Óðinn. Fokk flæðismetafor mínar rímur eru syndaflóðið. Eftir battl. Heyri ég aldrei klapp. En ég elska grátina. Til helvítis með jarðneskar eigur við skulum battla uppá sál þína. Þú veist ekki í hverju þú lendir er koman er fyrir hendi. Hlustaðu á rímurnar afturábak og þú heyrir djöfullegar athugasemdir. Og jafnvel Auxpan öskrar á eftir mér að ég sé viðundur. Og þeir sem byrja að fíla mig er kallaðir djöfladýrkendur. Listamaðurinn fyrrum þekktur sem Bent til að hrista upp í hlutunum. Og nýja nafnið mitt er fimmhyrnd stjarna með hring utan um. Andstæðingar grípa ekki hljóðnemann þeir grípa kross og beina honum að mér. Og enginn stígur upp án Biblíu og hvítlauk um hálsinn á sér. En mig langar að verða frægur rappari fá samning og meika það. En sviðsframkoma mín er þannig að Marilyn Manson myndi ekki einusinni mæta á tónleika. Hatur mitt er hreint (er það rétt??), ríf úr mér svart hjartað til að sýna hversu ég reiður er. Mun aldrei róast fyrr en það er endurvaktar mannfórnir til heiðurs mér…
Viðlag
og já.. YOU O ME!! og ég gerði punkta í staðinn fyrir skástrik… og ég fór ekki yfir þetta…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..