Þetta var magnað ^^ Var reyndar ansi hrædd fyrst.. Varð svo alvarlega pirruð þegar ég sá að öll kálfamerkin sem ég var búin að raða rugluðust aftur.. =)
ég var að horfa á james bond myndina on her majestys secret service, ég var veikur heima með niðurgang, bróðir minn fann ekki fyrir neinum skjálfta því hann var í hoppukastala, hann var ekkert smá fúll, það brotnaði eitthver leirmynd í stofunni sem pabbi og mamma fengu í brúðkaupsgjöf
Ég var inní dalnum í Vestmannaeyjum og ég stóð undir fjallinu(: Frænka mín var að klifra í því og liðið hennar, þær þurftu áfallahjálp eftir þetta. Heheh(: Annars byrjuðu steinarnir bara að detta og ég hljóp og hljóp og hljóp og hljóp. Það var STUÐ!:D
Ég var á Flúðum (rétt hjá upphafsstaðnum) og var að labba inn í veitingastað þegar ég sé allt byrja að hristast svakalega, fyrsta hugsunin var að þetta væri einhver hrekkur hjá starfsfólkinu (var 10 ára). svo hlupum við út og ég man að á leiðinni út þá datt vasi næstum því á mig. svo úti þá var malbikið að svona.. hreyfast einhvernveginn og mjög weird..
..svo í seinni skjálftanum þá var ég á klóstinu :D og man bara eftir svona hvini í hurðinni. (var í rvk þá, flúðum flúðir :D )
Heima sat í sófanum og var að horfa á Jurasic PArk 3 svo kom sonna grameðlu atriði þegar hun var að elta þau þá kom jarðskjálftin alveg eins og í myndini þegar það vasr hlaupandi grameðla soldið sonna scarry:þ´man alveg hvað þetta entist lengi xD
ég var að kaup mér candyfloss niðrí bæ þegar jörðin byrjar að titra og ég lít í kringum mig og sé þessa heví konu ganga. og ég helt eitt sekúndu brot að hún væri að þessu^^
Ég var á leiðinni frá Stokkseyri og við stoppuðum því að ég þurfti að míga (21 Jún) Svo í miðri bunu þá kom karðskjálftinn, en ég náði samt að klára slysalaust.
Hvar varstu svo þegar eftirskjálftinn kom þann 21.Júní?í íþróttahúsinu í þorlákshöfn að horfa á skaraskrípó gera galdra.. skjálftinn kom og ég drulluhrædd og allir veinuðu eitthvað.. skari skrípó sagðist hafa galdrað þetta.. og trúðu flest allir krakkarnir honum.. meira segja apóteka konan sem sat við hliðina á mér sagði : "Helvíti er kallinn öflugur!
ég var so hrædd við kallinn að ég hljóp grenjandi heim til mömmu.
En man ekki hvar ég var 21. einhvern vegin er það alveg dottið út :S:S
- Er gaman af biluðu bulli? Skoppaðu þá eins og fiskur í algjöru rugli!!
ég var í reykjavík heima hjá afa mínum með frænku minni og frænda. frændi minn reif mig með sér í næstu dyragætt.
var eftirskjálftinn ekki um nótt? eða seint um kvöld? ég man bara eftir að hafa vaknað útaf einhverju (vissi ekkert af hverju) og mamma kom hlaupandi inn og sagði að það hefði verið jarðskjálfti.
Ég var á Geysi þegar fyrri skjálftinn reið yfir og ég var í frekar ótraustu húsi sem var varla fest við jörðina. Svo í seinni þá var ég sofandi og vaknaði við hann og sá að það var fullt af fólki komið út á náttfötunum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..