Áður en ég fór í vinnuskólann í morgun tók ég stýrurnar úr hundunni minni og klappaði henni, nuddaði augað pínu og augað fór í klessu.
Svo var blár búinn þegar við vorum að mála, við gáðum í allar dollurnar. Við fórum bara að róla á leikskólanum sem við vorum að mála á og allt í lagi með það.
Svo þurftum við að taka til í dollunum og fundum bláan, merktan rauðum… og kellingin bara “Ég sagði þeim að leita!! ”
Svo þegar ég kom heim var ég drulluþreytt og lagðist upp í sófa og lagði mig bara. Nú er ég að deyja í hausnum, hálsinum, fótunum og nefinu.