Nú er ég búinn að vera með hausverk í samtals 5 tíma straight! Þetta er bilun! Ógeðslegt! Í hvert skipti sem ég hreyfi mig fæ ég hjartslátt í hausinn, þið vitið hvað ég meina.
Viðbjóðslegi hausverkur, þoli ekki þegar ég fæ svona. Næst þegar ég fæ svona ætla ég í verkfall gegn því að hausverkir hætti að ráðast á mannkynið.
stjórnandi á /bretti, /vetraríþróttum og /heimilið
Leiðinlegt. Ertu búinn að prófa að taka verkjatöflu?
Annars er ég með krónískan höfuðverk, er nánast alltaf illt í höfðinu, og stundum stöðugt alveg vikum saman. Og já, stundum líður manni einsog maður muni ganga af göflunum.
Ég væri búinn að skjóta mig o.O Og já, tók eina Panodil fyrir svona klukkutíma, virkaði í smástund. 15 min eða eitthvað, mjög þægilegar fimmtán mínútur.
stjórnandi á /bretti, /vetraríþróttum og /heimilið
Ég fæ nefnilega hausverk a mismunandi staði í hausnum eftir því hvað veldur honum. Er með nokkra áhrifavalda: Mígreni, krónísk vöðvabólga, stíflaðar ennisholur og augun á mér eru í fokki eftir 3 aðgerðir og þreyta því mjög á mér hausinn :P
Ohh … Kannast of vel við þannig. Ef ég er ekki með vöðvabólgu eða vatnskort (get ekki lært að drekka vatn :S) er ég með hausverk útaf svefni. Annað hvort sef ég of stutt eða of lengi, eða ég svaf órólega, eða koddinn minn er ekki réttur, eða bara ég er með hausverk af því ég svaf (ekkert skárra að sofa ekki því það er alveg sami hausverkurinn)
Ég er á móti svefni! (nema þegar maður er ógeðslega líkamlega þreyttur og sofnar fast alveg strax :) mmmm …)
Maður ætti kannski að hætta að væla og fara að sofa? :P
Ég sef reyndar ekki alltaf svona illa … Bara núna af því koddinn minn er leiðinlegur og það eru svo margir gestir þannig að ég fékk ekki mitt eigið rúm :(
Ég ætlaði að fara að sofa en þá var fluga inní herberginu mínu og … ef ég á að vera hreinskilin er ég eiginlega hrædd við flugur :S Sérstaklega þessa því hún flaug lengi hringi yfir mér þótt ég hefði slökkt ljósið :S
Þetta er mjög líklega skýringin á hausverknum. Vegna þess að þú ert búinn að drepa á þér bakið með þungum búnaði og vondum dýnum, farðu í brennheitt bað til að slaka á vöðvunum.
hæhæ ég las að þú varst að tala um hausverk og ég er 13 ára stelpa og hef verið með hausverk á hverjum degi í 3 ár núna ég hef látið taka mynd af hausnum á mér tvisvar sinnum farið til læknis 7 sinnum og látið taka blóð úr mér 2 sinnum ég er ekki með mígrene og núna fyrir 3 mánuðum byrjuðu að koma svimar með hausverkjunum hausverkirnir eikjast með hverjum deginum eins og sviminn veistu hvað gæti valdið þessu?? hausverkurinn er aðalega allstaðar og er eins og sona þrístingu
Vöðvabólga, bólgur sjást ekki á neinum myndum. Ertu stíf í öxlunum og bakinu?
Hvar á landinu býrðu? Get bent þér á Bowen líka, það er rosalega gott og virkar mjög vel. Veit um einn bowen tækni í rvk og einn á akureyri. Ég mæli með því og margir aðrir mæla með því t.d. við hausverkjum og vöðvabólgu
Þekki t.d. strák sem var alltaf illt í bakinu og fór í Bowen og sagði svo að það hefði ekkert virkað en eftir meðferðina var honum ekki eins illt.
Hjá mér minnkaði frjókornaofnæmi og túrverkir t.d.
ég prufaði að fara í svona nudd og eftir nokkra tíma einusinni í viku og notaði hitapoka en svo þegar ég hætti í nuddinu og nota samt hitapokann af og til en samt kemur hausverkurinn aftur bara verri en áður :(
Ég er alltaf með hausverk bara mis mikið…maður vennst þessu smámsan nema þegar maður fær mígreniskast það er LIVING HELL. besta leiðinn er að fara í sturtu og sofa vera í mirkri og ekki vera í tölvunni né að horfa á sjónvarpið ;) láttu þér líða vel
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..