Jamm. Ég er sekur. En ég á bara afmæli svo nálægt jólunum og ég fæ aldrei almennilega jólagjöf ekki nema ef ég fæ bara drasl í afmælisgjöf. En í þetta ár þá veit ég að ég fæ ekki drasl í afmælisgjöf bara ömurlega jólagjafir heheheh. En þegar ég fermdist þá á fólk aftur nóg af pengingum og getur keypt eitthvað sniðugt en reyndar fékk ég lítið af gjöfum ég fékk bara oftast pening frá þeim sem ég eyddi í rándýra 286 PS/system 2 tölvu sem er núna á haugunum. En ég var ekki með neitt vit á tölvum á þessum tíma þá enda var þetta fyrsta talvan sem ég keypti mér.
Vonandi kom ég með gott fordæmi fyrir ykkur sem voruð að fermast að eyða ekki fermingarpeningunum ykkar í eitthvað sem verður bara drasl með árunum. Eyðið frekar í sparnað það margborgar sig. Svo vill líka til að ég fermdist á nákvæmlega sömu ljótu jakkafötunum og Sveppi var í nema ég var með ljótara bindi hahaha. *lol*