Sko…ég á vin sem heitir Óttar kallaður Rattó eða rottan. Alla vega, eftir að við sáum Friðriks 2000 auglýsingarnar sannfærðumst við að Egils Orkan væri í raun lykillinn af hliði sannleikans og þá fórum við að drekka óhóflega mikið af henni…
Eftir að hafa innbyrgt nokkuð mikið magn af Orku yfir árin fóru að koma fram nokkurs konar hæfileikar/eiginleikar samhliða Orkudrykkjunni okkar…
Óttar fór að geta hreyft sig hraðar en ljósið og notaði þennan hæfileika til að snatcha dóti og eiginlega öllu sem ekki var límt niður. Hann er einna frægastur fyrir plastpokaránið mikla 2003. Þegar hann snatchaði 5 rúllum af glærum plastpokum úr Samkaupum á ísafirði…sem við seinna festum við bílinn minn og keyrðum á milljón út í hnífsdal með rulluna á eftir okkur. Good times…
Hæfileikinn minn var ekki jafn saklaus og hans óttars…ónei, því að eftir að hafa drukkið óhóflegt magn af Orku þá breyttist ég í “Snapparann” eða “Snappmann, ógnvaldinn mikla!”
Sem í raun lýsir sér þannig að öll þessi uppsafnaða Orka leitar út. Ekki í vökvaformi, heldur í formi hreinnar reiði!
Það var svalur laugardagsmorgun, fuglar sungu og sólin var að teygja geisla sína yfir hálfsofandi fjörðinn. En eitthvað var ekki eins og það átti að vera…
…meðfram aðalgötu bæjarins labbar drungaleg vera. Ekki maður, ekki dýr…
Síðan stoppar skepnan. Tíminn stendur í stað, jafnvel hin minnsta sköpun alvaldsins stendur í stað. Ekki múkk… og síðan BÚÚMMMM!!
Ljósastaurar bogna, tómar Orkuflöskur fljúga…Skrímsli er fætt! Öll þessi Orka, brýst út í einu! Og að lokum kemur öskur sem sker í gegnum kyrrðina eins og ostaskeri gegnum ost! AHRWARWWWWGR!!!!!
Hljómar einsog samblanda af hlátri og mökunarkalli elgs!
Ekkert er látið í friði! Jafnvel árvökul guðs börn verða fyrir ofsóknum!
Síðan er því lokið, eins skyndilega og það hófst hættir það. En eyðileggingin er enn til staðar…og í raun eina veran sem kætist þennan morgun er dósakonan því að bærinn er fullur af tómum Orkuflösku…hvað gerðist þennan örlagaríka morgun veit enginn fyrir víst, en þegar ég vaknaði fann ég að það voru farin að vaxa hár á bakinu á mér…
Hence…snappmann! ;)