Nei, það er ekki hægt nema með veseni, þ.e.a.s. þar sem iTrip dregur rafmagn úr ipodnum þá þyrftirðu að finna straumgjafa sem gefur sömu spennu og tengja hann við.
Hins vegar er til nóg af öðrum tegundum af FM transmitterum sem hægt er að tengja við öll tæki sem hafa minijack tengi, og yfirleitt fylgir þeim sígarettukveikjara-rafmagnstengi svo þú þurfir ekki að spandera batteríum. Hins vegar veit ég ekki til að nein verzlun á Íslandi sé byrjuð að selja þetta, en getur flett þessu upp á eBay undir FM transmitter.