Já, merkilegt nokk, það er hægt að hafa gaman að tungumálinu. Því ríkara sem það er því skemmtilegra. Það fer þess vegna í mig þegar fólk er að nota einhverjar ógeðfeldar slettur til að krydda mál sitt þegar það eru til fullt af skemmtilegum orðum í íslenskunni. T.d. gætu menn talað um að afdjöfla í stað þess að fermast og í stað þess að rífast um hvort maður segir pylsa eða pulsa þá geta menn bara fengið sér kjötvafning.