Fyrst fékk ég alltof lítið borgað, var á einhverju jafnaðarkaupi (sem btw er oft notað til að svindla á fólki þ.e borga því minna) og það tók langan tíma að fá það lagfært.
Svo mátti ég ekki kalla mömmu mamma í vinnunni, það var ekki nógu “professional” (við unnum í sömu deild).
Og það sem fyllti mælinn var það að það átti að taka af þér kassaleyfið af því kassinn var alltaf vitlaus - það var ss verið að kenna mér um það, þó ég væri ekki alltaf að vinna og það væri ekki hægt að sanna að villurnar í kassanum væru mér að kenna. Þá fór mamma í kasti niður til yfirmannanna (sem sögðu mér þetta í gegnum símann, þvílíkt “professional”, sérstaklega þar sem síminn er við afgreiðslukassann) og reifst og svo gengum við út, þó vinnudagurinn væri ekki búinn.
Debenhams er ekki vinnustaður sem ég mæli með, alltaf verið að skipta um fólk og yfirmennirnir eru hundleiðinlegir.