Svo er mál með vexti að það var ungur maður sem hringdi í pabba minn um daginn (það var í þarsíðustu viku held ég).
Maðurinn skírði pabba frá því að hann hafði dreymt draum. Í draumnum kom maður til hans með miða, á miðanum var símanúmer…
Þegar maðurinn vaknaði þá mundi hann símanúmerið. Svo hringdi maðurinn í þetta símanúmerið og viti menn…þetta var símanúmerið hans pabba!!
Þeir töluðu saman og komust að því að þeir þekktust ekki neitt, pabbi hafði enga hugmynd um afhverju manninn dreymdi þetta :/

Ég verð bara að fá einhvern botn í þetta, ég hef bara aldrei heyrt annað eins og þetta…
Vitið þið eitthvað hvað þetta gæti þýtt eða vitið þið um svipuð tilvik?


DM