Þetta er gert í sumum múslimaríkjum. Meirihlutinn af ytri börmunum er skorinn af. Það er sjaldnast haft fyrir því að gera þetta á sjúkrahúsum (einsog gert er með umskurn karla á vesturlöndum), heldur gera heimilisfeðurnir þetta heimafyrir. Stundum er ekki einusinni notaður hnífur, heldur bara beittur steinn eða jafnvel tennurnar. Ef konan öskrar á meðan þetta er gert (og hún er auðvitað ódeyfð) leiðir hún skömm yfir fjölskylduna. Svo er saumað fyrir, og margar konur fá alvarlegar sýkingar vegna þessa.
Spennandi? Meira um þetta
hérna og ef þetta nægir þér ekki geturðu lesið bókina Eyðimerkurblómið eftir ofurfyrirsætuna Waris Dirie, en hún er fædd í Sómalíu þar sem umskurður er hluti af menningunni. Og já, hún var umskorin.